GRANÍT og KVARTS Í ÚRVALI

SETTU STEIN Á ELDHÚSIÐ, Í GLUGGANA OG BAÐIÐ

Borðplötur, sólbekkir, gólfflísar, utan- og innanhúsklæðingar, arnar og legsteinar eru meðal þess sem við bjóðum uppá.


Við sérsmíðum eftir pöntun og bjóðum upp á ýmiskonar afgreiðslu og uppsetningarþjónustu, sniðna að þínum þörfum


Forsiða

10 ástæður til að velja Silestone kvarts

Borðplötur
Granít
Kvarts
Harður Kalksteinn
Grágrýti
Sérpantanir
Máltaka
Uppsetningar
COSENTINO group

 

Ekkert "SMÁ" mál

 

Við hjá Steinsmiðjunni Rein berum okkur eftir því að framleiða borðplötur úr náttúrustein sem eru klæðskera sniðnar að hverju eldhúsi og eiganda þess, það er mjög fín lína á milli fullkomnunar og fúsks, í okkar huga er aðeins annað sem kemur til greina og biðjum við þig að leggja þitt af mörkum til þess að það takmark megi nást á sem fljótastan og þægilegastan máta. Hafa þarf eftirfarandi í huga þegar máltaka fyrir granít er pöntuð:

Innrétting þarf að vera komin upp og allir skápar fastir og fullfrágengnir til þess að máltaka geti farið fram, nauðsynlegt er að húsráðandi eða byggingastjóri sé á staðnum með máltökumanni til þess að fara yfir allar útfærslur og svara hverjum þeim spurningum er geta komið upp meðan á máltöku stendur, best er að hafa einnig teikningar af innréttingu á staðnum til þess að styðjast við. Algjört skilyrði er að þil og annað sem sett er utan á skápa sé á staðnum eða mjög nákvæmar upplýsingar um þykkt og staðsetningu. Hvert smáatriði er aðalatriði.

Mikilvægt er að búið sé að ákveða hvaða vask, blöndunartæki og helluborð á að nota en það er þó ekki nauðsynlegt, þessum upplýsingum má skila á skrifstofu okkar eftir að máltaka fer fram, hafa ber í huga að ekki er hægt að hefja framleiðslu á borðplötum fyrr en allar þessar upplýsingar liggja fyrir hjá Steinsmiðjunni Rein. Búast má við töfum á afhendingu á borðplötu verði seinkun á afhendingu fyrrgreindra atriða.

Eftirfarandi atriðum er gott að húsráðandi sé búinn að mynda sér skoðun á þegar máltaka fer fram:

Útfærsla á vask: undirfelldur, sléttfelldur, yfirfelldur.

Ef fleiri en eitt hólf er á undirfelldum vask: staðsetning á hólfum, er steinbrú á milli?, á að nota skol skál?

Staðsetning á: Blöndunartækjum, tappalyftu, sápudælu.

Útfærsla á helluborði: yfirfellt, sléttfellt.

Frágangur á köntum: borðplötubrún og við vaska.

Hvað á borðplata að standa langt fram yfir innréttingu: við hurðar, á endum.

Það er markmið okkar að veita sem besta og fljótasta þjónustu, sé farið að leiðbeiningum hér að ofan leggur þú þitt af mörkum til þess að koma í veg fyrir að tafir og eða mistök af völdum rangra eða lélegra upplýsinga seinki afhendingu á borðplötunni þinni.

Það er ekkert "SMÁ" atriði.

Aðrir vöruflokkar
Legsteinar

Legsteinar á tilboði
Duftreitir
Granít
Marmari
Blágrýti
Fylgihlutir legsteina
Letur
Postulínsmynd
Kerti
Fletta bæklingi
Uppsetning
Viðhald

 

 

 

 

 

 

Um okkur

Verklag
Staðsetning
Hafðu samband
Verslun

Samstarfsaðilar

Steinsmiðjan Rein ehf., Viðarhöfða 1. 110 Reykjavík S:566-7878 Fax:566-8787

rein@rein.is

Opnunartími: mánudag til fimmtudaga: 9.00-18.00

föstudaga: 9.00-17.00

Copyright © Steinsmiðjan Rein ehf., 2012